Fimm heiðraðir í Grindavík
Fimm sjómenn voru heiðraðir fyrir störf sín á sjómannadeginum í Grindavík. Þeir tóku við viðurkenningum frá Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur við hátíðlega athöfn í Grindavíkurkirkju.
Á myndinni eru frá vinstri: Kristín Arnleif Gunnþórsdóttir , Sigurgeir þór Sigurgeirsson, Ólína Þorsteinsdóttir, Sigurður Gunnarsson, Enok Bjarni Guðmundsson, Anna Sigríður Björnsdóttir, Hólmfríður Birna Hildisdóttir, Gunnar H.B. Gunnlaugsson, Steinunn Gestsdóttir, Tryggvi Sæmundsson og Einar Hannes Harðarsson, formaður SVG.