Óskar tilboða í makríl og rækju

Deila:

Fiskistofa auglýsir nú eftir tilboðum í skipti á aflamarki. Í boði eru nú 6.951 tonn af makríl og 20,8 tonn af rækju við Snæfellsnes í skiptum fyrir þorsk. Stuðullinn í makríl er 0,20 þorskígildi og 0,86 í rækjunni.

Við mat tilboða er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar. Viðmiðunarverð síðasta mánaðar: þorskur 398,24 kr/kg.

Tilboðsmarkaðurinn er opinn til 28. Þessa mánaðar. Ekki er gerð krafa um lágmarkstilboð.

Samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu ber að greiða 12.900 krónur fyrir hverja úthlutun aflaheimilda á tilboðsmarkaði. Þannig ber tilboðsgjafa að greiða þá upphæð fyrir hvert tilboð sem tekið er að fullu eða að hluta.

Deila: