Breytingar framundan á Sauðárkrókshöfn

Deila:

Sveitarfélagið Skagafjörður og Skagafjarðarhafnir hafa lagt fram matsáætlun til Skipulagsstofnunar vegna Sauðárkrókshafnar. Umtalsverðar framkvæmdir standa þar fyrir dyrum. Allir geta kynnt sér matsáætlunina og veitt umsögn um framkvæmdina.

Matsáætlunin er aðgengileg hér og hjá Skipulagsstofnun í Borgartúni 7b í Reykjavík sem og hjá skipulagsfulltrúa Sveitarfélagsins Skagafjarðar.

Umsagnir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 5. ágúst 2022 til Skipulagsstofnunar bréfleiðis eða með tölvupósti á skipulag@skipulag.is.

 

Deila: