Segir ósamræmi í löggjöf

Deila:

Fiskistofustjóri segir ósamræmi í löggjöf milli atvinnugreina um skilgreiningu á tengdum aðilum. Fyrirtæki teljast ráðandi aðilar með mun lægra eignarhlutfall í flestum öðrum greinum en í sjávarútvegi. Þetta segir hann í viðtali á visir.is

Með kaupum Síldarvinnslunnar á Vísi í Grindavík á Samherji aðild að fimmtungi heildarveiðiheimilda í landinu. Lögbundið viðmið er tólf prósent. Fyrirtækið telst hins vegar ekki tengdur aðili að kaupunum samkvæmt lögum þar sem Samherji á einn þriðja hlut í Síldarvinnslunni en hefði þurft að eiga helming til að flokkast sem tengdur aðili.

Skilgreining á tengdum aðilum er hins vegar mun lægri í öðrum greinum en í sjávarútvegi, eins og til dæmis á fjármálamarkaði. Þar teljast til tengdra aðila fari hlutdeild þeirra yfir tuttugu prósent.

Ögmundur Knútsson Fiskistofustjóri segir viðmiðið í sjávarútvegi hátt.

„Miðað við aðrar atvinnugreinar er þetta frekar hátt hlutfall.  Menn teljast ráðandi aðilar með mun lægra eignarhlutfall heldur en þetta annars staðar. Það má kannski segja að það sé eitthvað ósamræmi í löggjöfinni varðandi þetta“ segir Ögmundur.

Það sé stjórnvalda að samræma löggjöfina.

„Það er alfarið á þeirra borði að breyta fiskveiðilöggjöfinni þannig að þessi mörk verði færð neðar,“ segir hann.

Hann segir kaup Síldarvinnslunnar á Vísi undir viðmiðum fiskveiðilaga um heildarkvóta en sameinað fyrirtæki fari nú með ríflega ellefu prósent hans.

„Samkvæmt fiskveiðistjórnunarlöggjöfinni sýnist okkur ekki vera neitt sem hindrar þessi kaup. Samkeppniseftirlitið á hins vegar eftir að úrskurða í málinu,“ segir Ögmundur.

 

Deila: