Útflutningsverðmæti eldisafurða aldrei verið meira

Deila:

Útflutningsverðmæti eldisafurða er komið í tæpa 23 milljarða króna á fyrstu 6 mánuðum ársins. Það hefur aldrei verið meira á fyrri helmingi árs. Í krónum talið er aukningin um 21% frá fyrra ári. Vegna styrkingar á gengi krónunnar er aukningin í erlendri mynt nokkuð meiri, rúmlega 26%. Þetta má lesa úr bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruskipti í júní sem birtar voru í fyrri viku. Þar sem þetta eru bráðabirgðatölur liggur sundurliðun á útflutningsverðmæti einstakra afurða á fyrstu sex mánuðum ársins ekki fyrir. Farið er yfir gang mála hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi.

Hækkun á verði
Vafalaust má rekja aukninguna á fyrri árshelmingi til laxeldis líkt og mánuðina á undan. Útflutningsverðmæti eldislax var orðið um helmingi meira á föstu gengi á fyrstu 5 mánuðum ársins en á sama tímabili í fyrra. Á sama tíma dróst útflutningsverðmæti silungs, sem er að langstærstum hluta bleikja, saman um þriðjung. Hlutdeild lax var komið í 86% af útflutningsverðmæti eldisafurða í heild samanborið við 76% á sama tímabili í fyrra. Aukningu á  útflutningsverðmæti eldislax má helst rekja til verðhækkana á afurðum og aukningar á framleiðslu. Um 16% meira magn var flutt út á fyrstu 5 mánuðum ársins en á sama tímabili í fyrra. Á sama tíma fékkst að jafnaði um þriðjungi hærra verð, mælt í erlendri mynt, fyrir hvert útflutt kíló. Hækkun á verði er ekki bundin við sérstakar breytingar í framleiðslu heldur fylgir hún almennum verðhækkunum. Jafnframt ber að halda til haga að lax lækkaði töluvert í verði á tímum COVID-19 og skýrir það að nokkru leyti hækkunina nú.

Ríflega 13% af sjávarafurðum
Samkvæmt nýlegri mannfjöldaspá Sameinuðu þjóðanna munu jarðarbúar verða 8 milljarðar í haust og 9,7 milljarðar árið 2050. Fólksfjölgun eykur spurn eftir prótíni sem erfitt verður að mæta með hefðbundnum veiðum. Fiskeldi hefur burði til að vaxa að magni til á skömmum tíma ólíkt sjávarútvegi sem byggist á sjálfbærri nýtingu á takmarkaðri auðlind. Aukning í fiskeldi blasir við á myndinni hér fyrir neðan. Þar sést útflutningsverðmæti eldisafurða sem hlutfall af útflutningsverðmæti sjávarafurða á fyrstu sex mánuðum hvers árs. Hlutfallið í ár er komið í 13,4% og hefur aldrei verið hærra. Fyrir áratugi var hlutfallið innan við 2%. Það felast mikil tækifæri í auknu fiskeldi og þeim jákvæðu áhrifum sem það hefur á þjóðarbúið og eldisfiskur getur orðið mikilvægur hlekkur í að tryggja fæðu fyrir komandi kynslóðir.

 

Deila: