Fiskistofa minnir á veiðiskyldu
Þær útgerðir sem eiga fiskiskip sem ekki hafa uppfyllt veiðiskyldu fengu tilkynningu þess efnis inn á stafrænt pósthólf útgerðarinnar á island.is í gær.
Fiskistofa brýnir við útgerðir sem fengu hnipp að kynna sér aflamarksstöðu skipa í eigu útgerðarinnar.
Hægt er að sjá aflamarksstöðu skipa og eftirstöðvar veiðiskyldu með því að fletta skipinu upp með skipaskrárnúmeri eða heiti í dálknum hér til hægri.
Ekki verður haft samband símleiðis vegna veiðiskyldu eins og verið hefur undanfarin ár heldur munu tilkynningar vera sendar í pósthólfið.