Félagsfundur í Fonti
Smábátafélagið Fontur hefur boðað til félagsfundar á morgun, fimmtudaginn 4. ágúst. Fundurinn verður haldinn í Þórsveri á Þórshöfn og hefst kl. 16:00.
Á dagskrá fundarins verða tvö mál.
- Lagðar fram til kynningar drög að nýjum samþykktum Fonts
- Fyrirhugaðar breytingar á strandveiðikerfinu
Allir smábátaeigendur á starfssvæði Fonts eru boðnir velkomnir en tillögu- og atkvæðisréttur er skilyrtur við félagsaðild.