Freyju fargað

Deila:

Frægasta sjávardýr Noregs um þessar mundir, rostungurinn Freyja, var aflífuð í gæmorgun. Freyja hafði gert sig heimakomna í smábátahöfn nálægt Osló, en fékk engan frið fyrir aðdáendum sínum. Norsk stjórnvöld segja hættu á að hún hefði getað ráðist á fólk. Frá þessu er greint á ruv.is

Norska sjávarútvegsráðuneytið greindi frá þessu í fréttatilkynningu . Þar segir að almenningur hafi virt að vettugi beiðnir um að halda sig fjarri rostungnum; því hafi verið hætta á að Freyja myndi ráðast á fólk.

Freyja, þessi sex hundruð kílóa kvenkyns rostungur komst í fréttirnar nýlega, eftir að hún gerði sig heimakomna í smábátahöfn nálægt Osló og átti það til að brölta upp á báta. Viðvera hennar fór fljótlega að spyrjast út; myndbönd af henni birtust á samfélagsmiðlum og fjöldi fólks fór að venja komur sínar að ströndinni til að fylgjast með Freyju. Stjórnvöld báðu almenning ítrekað að láta Freyju í friði; hún væri farin að sýna merki þess að vera stressuð og gæti mögulega verið hættuleg.

Í tilkynningunni frá sjávarútvegsráðuneytinu í morgun var tekið fram að ekki hefði þótt ráðlegt að flytja rostunginn á norðlægari slóðir, og því hefði ákvörðunin um að aflífa Freyju verið sú eina rétta í stöðunni.

 

Deila: