Bláskel á tælenska vísu

Deila:

Mörg er matarholan við strendur Íslands. Í fjörur og sjóinn höfum við sótt mat frá örófi alda, en reyndar ekki nýtt þá auðlind sem skyldi. Þar má nefna bláskelina, sem áður fyrr var mikið notuð í beitu en lítt til manneldis. Á því hefur orðið mikil breyting á síðustu árum með aukinni víðsýni í matreiðslu og vaxandi framboði af bláskelinni úr eldi. Eitt þeirra fyrirtækja sem elur, eða kannski frekar ræktar bláskel, er Íslensk bláskel í Stykkishólmi. Fyrirtækið selur ferska bláskel í verslanir og á veitingahús. Bláskelin er yfirleitt fremur einföld í matreiðslu, en mikilvægt er að nýta aðeins þær skeljar sem opnast við suðu til matar, en henda hinum frá. Opin lifandi skel lokar sér ef bankað er létt á hana. Sömuleiðis opnast lifandi skel við suðu, en opnist hún ekki skal henni hent.
Á heimasíðu fyrirtækisins blaskel.is er að finna ýmsar uppskriftir og er eftirfarandi uppskrift fengin þaðan:
Gríðarlega margar uppskriftir er að finna um Bláskel á vefnum. Þar má finna mexíkóskar, kínverskar, franskar, tælenskar og svo framvegis. Thailenska uppskriftin okkar miðaðist við að geta nálgast aðföngin í hana í næstu lágvöruverslun í Stykkishólmi.Þannig má skipta karrýi út fyrir karrýmauk og einnig hægt að nota sérhæfðari soja- og fiskisósu.
Innihald:

2 tsk fersk engiferrót
1 msk karrí
2 kg fersk íslensk bláskel
2 msk söxuð fersk kóríanderlauf
2 msk sojasósa
2 msk fiskisósa
2 dósir kókosmjólk (þessar litlu)

Aferð:
1. Skolið skelina úr köldu rennandi vatni, hendið þeim sem lokast ekki við að bankað sé á þær.
2. Hitið kókosmjólk, fiskisósu, sojasósu, rifna engiferrót og karrí á miðlungshita þar til sósan þykknar í rúmgóðum potti eða djúpri pönnu (wok hentar líka mjög vel)
3. Bætið skelinni út í, setjið lok á pott/pönnu og eldið í 5-6 mínútur eða þar til skeljarnar hafa opnað sig. Þær sem ekki opnast , á að henda!!
4. Hrærið skeljum vel við sósuna og stráið söxuðu kóríanderlaufi yfir.
Magnið sem notast er við í þessari uppskrift dugar sem forréttur fyrir 4 fullorðna. Gott er að hafa frekar víðan pott við matreiðsluna og þétt lok á hann tiltækt.

 

Deila: