Ein milljón tonna af laxi árlega úr hrognum frá Vogum

Deila:

Benchmark Genetics Iceland hf. (áður Stofnfiskur hf.) opnaði nýtt og stærra hrognahús sitt í Vogum á Reykjanesi á þriðjudaginn. Nýja húsið er tengt við eldra hrognahús og í stöðinni er einnig framleiddur lax til framleiðslu hrogna. Frá þessu er greint í Víkurfréttum, vf.is

Nýja hrognahúsið er 2.300 fermetrar og getur framleitt um það bil 300-400 milljón hrogn á ári sem dugar til framleiðslu á 1 milljón tonnum af eldislaxi. Sett í samhengi við matvælaframleiðslu verður þetta að 6,6 milljörðum matarskammta út um allan heim. Það er eins og að hver Íslendingur myndi fá 18.000 skammta af laxi á ári.

Laxeldi í heiminum er í örum vexti og er áætluð framleiðsla um 2,9 milljón tonn árið 2022 og spáð er að framleiðslan verði 4,2 milljón tonn árið 2032.

Benchmark Genetics selur laxahrogn til 28 landa sem þýðir að í öllum þessum löndum er framleiddur lax sem byrjaði líf sitt sem hrogn í Vogum á Íslandi.

Nýja hrognahúsið er með 10.000 hrognaker þar sem hægt er að framleiða hrogn allt árið um kring. Fyrirtækið er með sérstöðu í heiminum þar sem laxastofn fyrirtækisins er talin einn sá heilbrigðasti og það getur sent frá sér laxahrogn til viðskiptavina allt árið um kring. Fyrirtækið nýtir sér einstæðar aðstæður á Reykjanesi þar sem gnægð er af fersku vatni og sjó úr borholum.

Hjá Benhcmark starfa 86 starfsmenn á sex starfstöðvum sem eru fyrir utan Voga, í Kollafirði, í Kalmanstjörn, í Höfnum, og á skrifstofu í Hafnarfirði og rannsóknarstofu í Háskóla Íslands.

Velta Benchmark Genetics Iceland var um 4 milljarðar á síðasta ári og hagnaður þar af um 1 milljarður. Útflutningstekjur eru um 85% af veltunni.

Jónas Jónasson, framkvæmdastjóri Benchmark Genetics Iceland og Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra í nýju hrognahúsi sem formlega var opnaði þessari viku. VF-mynd: Hilmar Bragi

 

 

 

Deila: