Stærsti makríllinn innan lögsögu

Deila:

Börkur NK var að ljúka við að landa 960 tonnum af makríl til vinnslu í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað í gærmorgun. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Jón Gunnar Sigurjónsson, yfirverkstjóra í fiskiðjuverinu, og spurði hann hvernig hráefnið væri.

„Við höfum fengið stærsta og besta makríl vertíðarinnar nú upp á síðkastið og það er einmitt makríllinn sem veiðst hefur innan íslenskrar lögsögu. Þetta er 500 – 600 gramma makríll. Það gengur afar vel að vinna þennan makríl og reyndar hefur vinnslan gengið vel alla vertíðina. Stærsti makríllinn, 400 – 600 gramma fiskur, er heilfrystur. Makríll, sem er um 350 grömm, er hausaður en hann þykir afar heppilegur í reyk. Smærri makríllinn, sem barst til okkar fyrr á vertíðinni, var hins vegar flakaður. Veiðin gengur upp og niður og akkúrat núna er sáralítil veiði. Vilhelm Þorsteinsson EA er á leiðinni til okkar með rúmlega 400 tonn og hann kemur í nótt,“ sagði Jón Gunna í gær.
Lokið var við að landa 960 tonnum af makríl úr Berki  í gærmorgun. Ljósm. Smári Geirsson

 

 

Deila: