N-lax skráður með fiskeldi að Auðbrekku

Deila:

Matvælastofnun hefur í samræmi við reglugerð nr. 1133/2021 ákveðið að skrá N-lax ehf. með fiskeldi að Auðbrekku við Húsavík. Um er að ræða landeldi á bleikju, lax og regnbogasilung í kerjum.

N-lax sótti um skráningu vegna 20 tonna hámarkslífmassa í matfiskeldi á bleikju, lax og regnbogasilung. Umsókn um skráningu var móttekin þann 13. júlí 2022. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um skráningu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður.

 

Deila: