Hoffell landaði 700 tonnum af makríl

Deila:

Hoffell kom til heimahafnar á Fáskrúðsfirði í gær með 700 tonn af makríl.  Aflinn fékkst í íslenskri landhelgi og voru 170 mílur af miðunum til Fáskrúðsfjarðar. Hoffell er komið með rúm 6.000 tonn af makríl á vertíðinni.

 

Deila: