Sigsteinn Grétarsson ráðin sem forstjóri Skaginn 3X og BAADER Ísland

Deila:

BAADER styrkir áfram teymið á Íslandi með ráðningu á Sigsteini Grétarssyni í stöðu forstjóra. Sigsteinn er margreyndur stjórnandi og leiðtogi með margþætta reynslu af alþjóðaviðskiptum og  matvælatækni.

Ráðningin er liður í að styrkja enn frekar stöðuna í íslenska hluta fyrirtækisins sem samanstendur af BAADER Ísland og Skaginn 3X.  Haft er eftir Robert Focke forstjóra BAADER Fish í Þýskalandi að þetta sé mikilvæg ráðning til að styrkja íslenska stjórnendateymið og að ráðningin sé lykil skref í áætlunum um að vera óumdeildur leiðtogi í heildarkerfum fyrir mismunandi tegundir fisks.

Aðspurður segir Sigsteinn að það séu spennandi verkefni framundan „BAADER hefur verið hornsteinn í Íslenskum sjávarútvegi í yfir 60 ár og hefur við góðan orðstír leitt sjálfvirkni í tækjabúaði.  Verkefnin halda áfram og við ætlum okkur að vera sá aðili sem er leiðandi í góðu samstarfi við íslenskan sjávarútveg.“

Um Skaginn 3X:

Skaginn3X er fyrirtæki sem vex upp í sterku samstarfi við íslenskan sjávarútveg og er nýstárlegur hátækniframleiðandi á kæli-, frysti- og vinnslukerfum fyrir alþjóðlegan matvælaiðnað og alþjóðlegur leiðtogi í uppsjávarvinnslukerfum. Systurfyrirtækið þess, BAADER Ísland er innflytjandi, framleiðandi og þjónustuaðili fyrir BAADER, TRIO og SEAC fiskvinnsluvélar.  Öll fyrirtæki eru nú undir einu þaki á Íslandi og að fullu í eigu BAADER sem er alþjóðlegur leiðtogi í þróun og framleiðslu fiskvinnslutækja.  Sameiginleg staðsetning og stjórnun á Íslandi hefur það að markmiði að hraða samstarfi við atvinnugreinina með framúrskarandi þjónustu og nýsköpun að leiðarljósi sem mun nýtast sjávarútvegi á Íslandi og alþjóðlega.

 

Deila: