Aðalfundur LS haldinn í október

Deila:

Aðalfundur Landssambands smábátaeigenda 2022 verður 20. og 21. október.  Vegna óviðráðanlegra aðstæðna varð að flytja fundinn um eina viku.

Fundurinn verður haldinn á Hótel Loftleiðum og hefst kl 13:00 með því að Arthur Bogason formaður LS flytur ræðu og setur fundinn.

Samkvæmt venju er fundurinn opinn öllum félagsmönnum, en aðeins 36 kjörnir fulltrúar svæðisfélaga LS, ásamt stjórn og framkvæmdastjóra hafa atkvæðisrétt.

Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra mun verða viðstödd setningu fundarins og ávarpa fundargesti.

 

Deila: