Hafnareyri  snyrtilegasta fyrirtæki Vestmannaeyja

Deila:

Trausti Hjaltason, framkvæmdastjóri Hafnareyrar, hefur tekið við viðurkenningu Rótarýklúbbs Vestmannaeyja og Vestmannaeyjabæjar í tilefni af því að Hafnareyri hlaut heiðurstitilinn snyrtilegasta fyrirtækið í Vestmannaeyjum. Hafnareyri er dótturfélag VSV. Frá þessu er sagt á heimasíðu VSV.

Trausti sagði af því tilefni við athöfnina:

,,Starfsmenn fyrirtækisins eiga heiður skilin fyrir elju við að hafa snyrtilegt í kringum sig. Þetta er okkur svo sannarlega hvatning í að halda því áfram og gera betur. Það er ánægjulegt fyrir okkur að fá svona viðurkenningu og vil ég þakka Vestmannaeyjabæ og Rótarýklúbbnum fyrir að standa að þessum árlega viðburði.”

Hjartanlega til hamingju, Hafnareyrarfólk!

Til gamans má svo geta þess að Vinnslustöðin er tengd fleiri verðlaunahöfum í dag:

  • Snyrtilegasta fasteignin: Nýjabæjarbraut 1, eigendur Hafdís Hannesdóttir, launafulltrúi VSV og Jóhann Þór Jóhannsson háseti á Breka VE.
  • Sérstök umhverfisviðurkenning: Hildur Jóhannsdóttir, útflutningsdeild VSV Seafood.

 

Deila: