396 skip fá úthlutað 321.000 þorskígildum
Fiskistofa hefur úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2022/2022. Heildarúthlutun er 321 þúsund ÞÍG tonn sem er lækkun um eitt ÞÍG tonn . Úthlutun í þorski er tæplega 164 þúsund en var rúmlega 175 ÞÍG tonn á síðasta fiskveiðiári. Úthlutun í ýsu er rúm 48 þúsund tonn og hækkar um 5 þúsund ÞÍG tonn milli ára.
Aflamarki er úthlutað á 396 skip í eigu 307 aðila. Skip Brims hf. eru með stærsta hluta úthlutunarinnar eða 10,26% af heildarúthlutun, Samherji Ísland ehf. kemur næst með 6,78% og FISK Seafood ehf. er með 6,28%. Sólberg ÓF-1 (2917) í eigu Ramma er það skip sem fær mestu aflamarki úthlutað, eða 9.565 ÞÍG tonnum. Guðmundur í Nesi ER-13 (2626) í eigu Brim hf. fær næst mest 7.645 ÞÍG
- Bátum í krókaflamarkskerfinu fækkar um 25 og eru nú 217
- Bátum í aflamarkskerfinu fækkar um tvo á milli ára og eru nú 179
- Bátar undir 15 m og 30 btn. fá úthlutað rúmlega 45 þúsund ÞÍG tonnum
- Bátar yfir 15 m, 30 btn. fá úthlutað 369 þúsund ÞÍG tonnum
Hér má sjá yfirlit yfir úthlutun fiskveiðiársins 2022/2023 útfrá margvíslegum sjónarhornum:
Skel- og rækjubætur
Alls fá 50 bátar úthlutað samanlagt 1.815 ÞÍG tonnum. Hér má sjá heildarskrá yfir úthlutun aflamarks til einstakra skipa, rækju-og skelbætur ársins
Tekið skal fram að enn eru fáein skip ófrágengin og getur því úthlutun til skipa enn breyst lítillega.