Þyrludróni gerður út frá varðskipunum

Deila:

Undanfarna mánuði hefur þyrludróni verið gerður út frá varðskipum Landhelgisgæslunnar. Um tilraunaverkefni er að ræða í samstarfi við Siglingaöryggisstofnun Evrópu, EMSA. Tilgangurinn með verkefninu er að kanna hvort og hvernig tæki sem þetta gagnist Landhelgisgæslunni við leit, björgun og eftirlit á hafinu.

Dróninn er af gerðinni Schiebel’s CAMCOPTER® S-100 og getur flogið bæði á nóttu sem degi. Hann kemst ríflega 200 kílómetra frá varðskipinu og getur verið í loftinu í allt að 10 klukkustundir. Þá getur dróninn flogið í allt að 18000 feta hæð. Flug drónans er unnið í nánu samstarfi við ISAVIA. Sérstakur pallur var settur saman af umsjónaraðilum verkefnisins á þilfari varðskipanna til að gera drónanum mögulegt að taka á loft og lenda.

Þyrludróninn er búin öflugum búnaði, þar á meðal myndavél sem hægt er að streyma úr beint í stjórnstöð Landhelgisgæslunnar og um borð í varðskipin.

„Fyrir þremur árum var mannlaust loftfar gert út frá Egilsstaðaflugvelli og gaf góð fyrirheit. Landhelgisgæslan er stöðugt að leita leiða til að auka viðbragðsgetuna umhverfis landið og er prófun þyrludrónans einn liður í því,“ segir meðal annars í frétt frá Landhelgisgæslunni.

 

Deila: