Fjórtán búrhvalir drápust við strönd Tasmaníu

Deila:

Ástralskir náttúrulífssérfræðingar gera nú hvað þeir geta til að varpa ljósi á ástæður þess að fjórtán ungir búrhvalir drápust eftir að hafa synt í land á afskekktri strönd Tasmaníuríkis. Frá þessu er greint á ruv.is

Hvalshræin fjórtán fundust síðastliðinn mánudag á strönd King Island norðanvert á Tasmaníu en rannsókn úr lofti sýnir að hvalirnir voru ekki fleiri. Dauði hvalanna kann að vera slys að mati Kris Carlyon, sjávarlíffræðings hjá ástralskri stofnun til verndar lífríkinu.

Hann segir það algengustu skýringuna, hvalirnir hafi verið í ætisleit nærri landi, og orðið strand á háfjöru. Nú sé fyrst og fremst unnið með þá kenningu en talið er líklegast að dauða hvalanna hafi borið að á sunnudaginn var.

Carlyon segir alls ekki óþekkt að hvalir syndi á landi en það sé þó sjaldgæft. Árið 2020 syntu 470 hvalir á land vestanvert á Tasmaníu og þrátt fyrir viðamiklar björgunaraðgerðir, við erfiðar aðstæður, drápust um 300 grindhvalir.

Þá töldu sérfræðingar skýringanna á því að hvalirnir syntu í land helst að leita í að nokkrir hvalir að villtust og að hinir hafi elt. Grindhvalir eru afar félagslyndar skepnur, sem getur orðið þeim skeinuhætt að mati sjávarlíffræðinga.

Deila: