Netaskóli Bergs – Hugins

Deila:

Guðni Hjörleifsson og Mateusz Szulc.
Ljósm. Arnar Richardsson

Á netaverkstæði Bergs – Hugins í Vestmannaeyjum starfa þeir Guðni Hjörleifsson og Rúnar Þór Birgisson. Hlutverk þeirra er að sinna veiðarfærum ísfisktogaranna Vestmannaeyjar VE og Bergs VE. Þessa dagana dvelja á verkstæðinu fjórir úr áhöfn frystitogarans Blængs NK og eru þeir í læri hjá þeim Guðna og Rúnari. Blængsmennirnir eru Adam Helgi Jóhannesson, Guðmann Óskar Haraldsson, Karl Gunnar Sigfússon og Mateusz Szulc. Það skiptir miklu máli að í áhöfn hvers togara séu menn sem færir eru um að lagfæra veiðarfærin þegar á þarf að halda og því fleiri í áhöfninni sem búa yfir slíkri færni því betra.

Karl Gunnar Sigfússon að bæta. Ljósm. Arnar Richardsson

Heimasíða Síldarvinnslunnar sló á þráðinn til Guðna Hjörleifssonar og spurði hann hvernig gengi að kenna þeim Blængsmönnum. „Blessaður vertu það gengur vel. Þetta eru mjög áhugasamir strákar og þeir hafa ákveðinn grunn sem hægt er að byggja á. Við hófum kennsluna á þriðjudagsmorgun og þeir verða hjá okkur í þrjá heila daga. Við förum í gegnum margt sem er gott að kunna. Meðal annars förum við yfir lestur teikninga. Akkúrat núna erum við að kenna þeim að splæsa dynex-tóg. Fyrir okkur Rúnar er þetta skemmtileg tilbreyting. Við höfum áður verið með menn hjá okkur úr áhöfnum Vestmannaeyjar og Bergs þannig að við erum ekki óvanir að sinna kennslustörfum. Strákarnir eru lifandi og hressir. Þeir spyrja mikið og við reynum að svara öllu eftir bestu getu,“ segir Guðni.

Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi einnig við einn Blængsmannanna, Mateusz Szulc, og spurði hann hvernig honum þætti námið í Eyjum. „Það er hreint út sagt alger snilld. Við erum að læra hér helling á stuttum tíma og kennararnir eru alveg frábærir. Staðreyndin er sú að það er erfitt að læra þetta út á sjó því það er enginn tími til þess. Þar hafa menn öðrum verkum að sinna. Við erum allir sammála um að það sé bæði gaman og gagnlegt að fara á námskeið eins og þetta og það á eftir að koma sér vel það sem við lærum hérna. Það væri gott að koma hingað aftur að þessu námskeiði loknu og læra meira,“ segir Mateusz.
Á efstu myndinni eru Adam Helgi Jóhannesson, Rúnar Þór Birgisson og Guðmann  Óskar Haraldsson að splæsa. Ljósm. Arnar Richardsson

 

 

Deila: