Traustur og góður vinnustaður

Deila:

Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafa veitt Síldarvinnslunni í Neskaupstað viðurkenningu sem framúrskarandi fyrirtæki í sjávarútvegi. Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra afhenti Gunnþóri Ingvasyni viðurkenninguna á sýningunni Sjávarútvegur 2022. Viðurkenningunni var fylgt úr hlaði með eftirfarandi orðum:

„Vart þarf að fara mörgum orðum um hlutverk Síldarvinnslunnar í heimabyggð og hvar sem hún er að störfum. Síldarvinnslan er eitt stærsta sjávarútvegsfyrirtæki landsins, hornsteinn í héraði, traustur og góður vinnustaður og starfsmenn hennar hafa lagt sig í framkróka um að ganga vel um og af virðingu um auðlindir sjávar.

Síldarvinnslan hefur nú verið skráð á opinn hlutabréfamarkað og þar með eru allar upplýsingar um rekstur og afkomu fyrirtækisins opinberar.  Lífeyrissjóðir hafa sýnt fyrirtækinu traust og fjárfest umtalsvert i því. Meðal stærstu hluthafa eru níu lífeyrissjóðir.

Síldarvinnslan er aðili að samfélagsstefnu sjávarútvegs og hefur gefið út samfélagsskýrslu undanfarin þrjú ár. Meginumfjöllunarefni þeirra er ekki síst um ýmsa ógjárhagslega þætti starfseminnar. Og á vettvangi umhverfismála hefur Síldarvinnslan látið til sín taka. Nefna má að fyrirtækið hefur leitað leiða til að kolefnisjafna sig, meðal annars á kaupum á jörð til skógræktar. Þá hefur fyrirtækið sett upp búnað, sem gerir skipum félagsins kleift að tengjast landrafmagni, sem nýtist í allri starfsemi skipsins í höfn.“

Deila: