Mast skráir bleikjueldi að Þverá í Vatnsfirði

Í samræmi við reglugerð nr. 1133/2021 hefur Matvælastofnun ákveðið að skrá Kristínu Ósk Matthíasdóttur með fiskeldi að Þverá í Vatnsfirði. Um er að ræða landeldi á bleikju í kerjum.
Kristín Ósk Matthíasdóttir sótti um skráningu vegna 20 tonna hámarkslífmassa í matfiskeldi á bleikju (Salvelinus alpinus). Umsókn um skráningu var móttekin þann 15. janúar 2022. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.
Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um skráningu til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður.