Sjávarklasinn vinnur að bættri nýtingu sjávarafurða í Bandaríkjunum

Deila:

Samtök fylkisstjóra þeirra bandarísku og kanadísku fylkja sem eiga land að Vötnunum miklu (Great Lakes) hafa ákveðið að efna til átaks um betri nýtingu hvítfisks sem veiddur er í Vötnunum miklu sem er eitt stærsta vatnasvæði heims. Verkefnið er unnið í samstarfi við Íslenska sjávarklasann og nefnist „100% Whitefish” sem vísar í þau tækifæri sem skapast við að auka nýtingu aukaafurða hvítfisks.

Íslenski sjávarklasinn hefur um þriggja ára skeið unnið i nánu samstarfi við Samtök fylkisstjóra við Vötnin miklu að því að skoða hvernig nýta megi betur vatnakarfa  (invasive carp) og hvítfisk (Lake Whitefish) í Vötnunum miklu til að auka verðmæti og bæta nýtingu þessara auðlinda. Vatnakarfinn í Vötnunum miklu hefur verið ágeng tegund sem ógnað hefur öðru lífríki í Vötnunum miklu og því hefur verið talið brýnt að auka veiðar úr þessum stofni. Hvítfiskurinn i Vötnunum miklu er hins vegar vinsæl fisktegund og áhugi er á því að nýta betur aukaafurðir hans.

Íslenski sjávarklasinn hefur leitt þetta verkefni og unnið náið með sérfræðingum Matís svo og tæknifólki frá Marel og Curio. Á næstu misserum má gera ráð fyrir að hópur íslenskra sérfræðinga sem komi að alþjóðlegri ráðgjöf klasans af þessu tagi stækki.

„100% Whitefish verkefnið” verður formlega sett á laggirnar í dag, hinn 29. september næstkomandi í Detroit borg í Michigan fylki í Bandaríkjunum að viðstöddum fulltrúum fylkjanna og Sjávarklasans.

„Verkefnum Sjávarklasans og samstarfsaðila hans af þessu tagi hefur fjölgað utan Íslands. Við sjáum mikil tækifæri fyrir Íslendinga til að nýta íslenskt hugvit og reynslu til að bæta nýtingu sjávarafurða og um leið að stuðla að minni sóun og draga úr kolefnisspori í matvælaframleiðslu á heimsvísu,” segir Þór Sigfússon stofnandi Sjávarklasans.

 

Deila: