Meira aflaverðmæti en í fyrra

Deila:

Aflaverðmæti í júlí 2022, við fyrstu sölu, var rúmlega 12,8 milljarðar króna samanborið við 11,8 milljarða í júlí 2021. Um 34% af aflaverðmætinu nú í júlí var vegna þorsks og 29% vegna makríls. Á tólf mánaða tímabilinu frá ágúst 2021 til júlí 2022 var heildaraflaverðmæti tæpir 186 milljarðar króna, sem er 31 milljarði króna meira en á sama tímabili frá sama tímabili 2020-2021.

Deila: