Flytur erindi um brjóskfiska

Deila:

Í dag, 5. október, kl. 12:30 verður málstofa Hafrannsóknastofnunar haldin í fundarsal á 1. hæð að Fornubúðum 5 í Hafnarfirði.

Mikko Vihtakari flytur erindið: R packages to plot your marine research.

Erindið verður flutt á ensku og streymt á YouTube rás Hafrannsóknastofnunar,

Mikko Vihtakari er sérfræðingur hjá norsku hafrannsóknastofnunni (Institute of Marine Research, Norway) og sérhæfir sig í rannsóknum á djúpsjó og brjóskfiskum. Bakgrunnur Mikko er í tölfræðilegri greiningu sjávarvistfræðilegra gagna og er um þessar mundir að vinna með stofnmat grálúðu ásamt öðrum tegundum. Mikko hefur einnig smíða tölfræðipakka fyrir forritunarmálið R svo sem ggOceanMaps sem er aðgengilegur á CRAN.

Í fyrri hluta málstofu mun Mikko kynna stuttlega rannsóknir sínar ásamt því að kynna R-pakka sem hann hefur hannað og hvernig maður getur nýtt sér þá til að teikna botnsjávar kortagögn (ggOceanMaps), að mæling lífsögu fiska (ggFishPlots) og að teikna haffræðileg kort (ggOceanPlots).

Seinni hluta málstofu mun Mikko sýna virkni tölfræðipakkana með því að svara spurningum þeim tengdum frá áhorfendum.

 

Deila: