Kolmunninn veiðist á Þórsbanka

Deila:

Barði NK kom til Neskaupstaðar í mánudagskvöldi með tæp 1.700 tonn af kolmunna. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Þorkel Pétursson skipstjóra og spurði fyrst hvar veitt hefði verið.

„Við vorum að veiðum í vesturbrún Þórsbankans. Aflinn fékkst í fimm holum en venjulega er tekið eitt hol á dag. Ekki er veitt yfir nóttina því þá dreifir fiskurinn sér. Segja má að þetta sé fínasta kropp en holin voru frá 180 tonnum og upp í 390 tonn. Einn daginn fengum við 440 tonn en þá tókum við tvö stutt hol.

Það er fisk að sjá þarna á allstóru svæði, fínasta ryklóð. Það sem skiptir auðvitað mestu máli er að kolmunninn veiðist í íslenskri lögsögu og ég reikna með að haldið verði áfram þessum veiðum þarna eins og mögulegt er. Menn þurfa að halda vel á spöðunum í kolmunnanum miðað við þann kvóta sem lagður er til á næsta ári og því meira sem veiðist innan lögsögunnar því betra. Við höfum verið einir að þessum veiðum en nú fer skipum að fjölga,“ segir Þorkell.
Barði NK kom til hafnar með góðan kolmunnaafla. Ljósm. Smári Geirsson

 

 

Deila: