Þorskverð hækkar

Deila:

Á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 4. október 2022, var ákveðið að breyta verðkúrfu óslægðs þorsks og viðmiðunarverði skv. kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

  • Slægður þorskur hækkar um 5,0%
  • Óslægður þorskur hækkar um 5,0%
  • Slægð ýsa lækkar um -8,0%
  • Óslægð ýsa lækkar um -8,0%
  • Karfi breytist ekki
  • Ufsi breytist ekki

Verðkúrfa óslægðs þorsks breytist þar sem verð hækkar nú jafnt með þyngd að 8 kg en hækkun var áður tvískipt að 6,5 kg. Grunnverð óslægðs þorsk var síðast 185,60 kr. en varð við breytingu verðkúrfu 225,75 kr. Eftir 5% verðhækkun 4. október hækkar grunnverð í 237,04 kr.

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 4. október 2022. Breyting þessi er gerð með tilvísun í 1. gr. laga nr. 13/1998.

Deila: