Georg sæmdur franskri orðu

Deila:

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, var sæmdur orðunni Ordre du Mérite Maritime af Guillaume Bazard, sendiherra Frakklands á Íslandi, í móttöku í bústað sendiherrans í vikunni.

Georg tók við orðunni fyrir hönd Landhelgisgæslunnar en í ávarpi sendiherrans kom fram að orðan væri meðal annars veitt fyrir að stuðla að góðum samskiptum og samstarfi franska sjóhersins og Landhelgisgæslunnar auk þess fyrir að greiða götu franskra skipa hér við land á undanförnum árum.

Í móttökunni þakkaði Georg þann heiður sem honum og Landhelgisgæslunni væri sýndur og benti á að samskipti Frakklands og Íslands tengdust sjósókn sterkum böndum sem næðu aldir aftur. Þá þakkaði hann öllum þeim sem unnið hafa ötullega að góðum samskiptum Landhelgisgæslunnar og franska sjóhersins. Einnig minntist Georg á að í tæp fjörutíu ár hefur Landhelgisgæslan notað franskar þyrlur til leitar- og björgunarstarfa hér á landi.

 

Deila: