Faxaflóahafnir lengja aðalhafnargarðinn á Akranesi

Deila:

Til að bæta aðgengi fyrir fiskiskip, farþegaskip og önnur þau skip sem höfnin á Akranesi þjónustar verður ytri hluti Aðalhafnargarðsins lengdur um 120 metra. Heildarlengd þess hluta bakkans verður þá 220 metrar.

Áætlað er að framkvæmdin verði boðin út í lok árs 2022 og að framkvæmdir hefjist á fyrri hluta árs 2023. Útboð á stálkaupum fyrir framkvæmdina fór fram á árinu 2022 og var afhent á Akranesi nú í september. Vert er að taka fram að 100% af stálinu er gert úr endurunnu stáli sem samræmist stefnu Faxaflóahafna. Framkvæmdartími verksins er áætlaður 1,5 – 2 ár og verður bakkinn því tilbúinn til fullrar notkunar árið 2024, segir Inga Rut Hjaltadóttir, sviðsstjóri Framkvæmdasviðs í samtali á heimasíðu Akraness.

Að sögn Sigurðar Jökuls Ólafssonar markaðsstjóra Faxaflóahafna hefur stækkun bryggjunnar þegar verið kynnt útgerðum farþegaskipa og var framkvæmdinni mjög vel tekið. Hún mun þýða að farþegaskip í millistærð munu geta lagst að bryggju í Akraneshöfn og farþegar þeirra upplifað það sem Akranes og nærumhverfi hefur upp á að bjóða. Nú þegar hafa verið bókaðar skipakomur á Akranes fyrir sumarið 2023 og áætlað er að þær verði enn fleiri sumarið 2024 þegar bryggjan verður tilbúin.

„Stækkun bryggjunnar á Akranesi er mikilvægur liður í þeirri uppbyggingu sem er að eiga sér stað á Akranesi. Hún mun bæta aðstöðu fyrir fiskiskip og stærri skip sem sækja auðlindir á hafi. Tækifæri samhliða stækkun er að sækja á fengsæl Akranesmið í botnfiski eða uppsjávarfiski. Einnig liggja möguleikar í fengsælum miðum grjótkrabba í Faxaflóa eða styðja við ný verkefni í loftlagstengdri ræktun á sjávargrænmeti og kræklinga- eða ostruræktun. Jafnframt mun stækkun gera millistórum farþegaskipum kleift að leggjast að bryggju á Akranesi og þannig bjóða farþegum skipanna að upplifa það sem Akranes og nærumhverfi hefur upp á að bjóða t.d. Guðlaugu við Langasand, vitasvæðið á Breið, Byggðasafnið í Görðum og frábæran golfvöll. Uppbygging hafnarinnar mun auka forskot Vesturlands í að taka virkari þátt í ferðaþjónustu, við verðum betur í stakk búin til þess að taka á móti stærri skipum. Stækkunin mun verða gríðarleg styrking okkar landshluta og eru mörg tækifæri í sjónmáli. Í byrjun ársins 2021 var haldinn íbúafundur á meðal Akurnesinga þar sem ýmsir hagaðilar af ferðaþjónustu komu saman, afrakstur fundarins var skemmtilega upp sett leiðbeiningaskjal með leiðbeiningum fyrir gesti hvað væri gaman að sjá og gera á Akranesi. Við á Akranesi eigum margt inni og erum full tilhlökkunar að móta Akranes sem spennandi og eftirsóknarverðan ferðamannastað,“ segir Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri á Akranesi.

Sigurður Jökull Ólafsson, Inga Rut Hjaltadóttir og Sævar Freyr Þráinsson

 

Deila: