Auglýst eftir tilboðum í skipti á aflamarki

Deila:

Fiskistofa auglýsir eftir tilboðum í skipti á aflamarki samkvæmt 4. gr. reglugerðar nr. 972/2022, um veiðar í atvinnuskyni fiskveiðiárið 2022/2023, með síðari breytingum.

Í boði er aflamark, í tilgreindum tegundum, í skiptum fyrir aflamark í þorski. Við mat tilboða er stuðst við meðalverð aflamarks síðasta mánaðar. Viðmiðunarverð síðasta mánaðar: þorskur 344,62 kr/kg.

Tilboðsmarkaðurinn hefur þegar verið opnaður. Ekki er gerð krafa um lágmarkstilboð.

Athugið að samkvæmt gjaldskrá Fiskistofu (http://www.fiskistofa.is/umfiskistofu/gjaldskra/) ber að greiða 12.900 krónur fyrir hverja úthlutun aflaheimilda á tilboðsmarkaði. Þannig ber tilboðsgjafa að greiða þá upphæð fyrir hvert tilboð sem tekið er að fullu eða að hluta. Eingöngu er unnt að gera tilboð í gegnum UGGA, upplýsingagátt Fiskistofu. Tilboðsmarkaðinn má finna undir Umsóknir/Þjónusta. Vakin er athygli á að Ugginn sendir sjálfkrafa staðfestingu um móttöku tilboðs.

Afturköllun tilboða eftir að umsóknarfrestur er runninn út er óheimil. Að gefnu tilefni er rétt að benda bjóðendum á að skv. 2. mgr. 4. gr. reglugerðar 972/2022 sem fjallar um þennan tilboðsmarkað, eru það eingöngu bjóðendur, ekki Fiskistofa, sem er heimilt að afturkalla tilboð svo lengi sem þeir gera það áður en tilboðsfrestur er liðinn. Því er mikilvægt að yfirfara tilboð vel áður en því er skilað og skoða tilboðið undir „Málin mín“ í UGGA eftir að tilboðinu hefur verið skilað til að tryggja að allt sé rétt. Ef mistök hafa átt sér stað við tilboðsgerð þá getur bjóðandi afturkallað tilboðið í UGGA allt þar til tilboðsfrestur rennur út.

Frestur til að skila tilboðum er til kl. 14:00 miðvikudaginn 26. október 2022.

 

 

Deila: