Námskeið fyrir kokka og matráða hjá Síldarvinnslunni

Deila:

Í næstu viku verða haldin námskeið fyrir kokka og matráða hjá Síldarvinnslunni. Á námskeiðinu verður farið yfir grunnatriði í næringarfræði og ræddar leiðir til að tryggja að sá matur sem í boði er hjá fyrirtækinu sé hollur og næringarríkur. Kennari er Norðfirðingurinn Berglind Lilja Guðlaugsdóttir, en hún er klíknískur næringarfræðingur, doktorsnemi og aðjúknt í næringarfræði við Háskóla Íslands. Námskeiðið er hluti af yfirstandandi heilsueflingarverkefni Síldarvinnslunnar. En verður þá ekkert nema grænkál og gulrætur í matinn hjá fyrirtækinu héðan í frá?

Berglind Lilja Guðlaugsdóttir

„Nei, alls ekki“, segir Sigurður Ólafsson, verkefnastjóri í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar. „Það er samt staðreynd að það sem við látum ofan í okkur getur haft veruleg áhrif á andlega og líkamlega heilsu og því er klárlega tilefni til að skoða hvað við erum að bjóða okkar fólki upp á. Við viljum tryggja að það séu sem oftast hollir og næringarríkir kostir í boði og að kokkarnir okkar, matráðarnir og sem flest starfsfólk hafi góðan skilning á grunnþáttum þegar kemur að mataræði. Margir vita heilmikið um þetta, en það eru líka ýmiskonar ranghugmyndir í gangi um mat og mataræði sem við teljum gagnlegt að leiðrétta. Þetta er efni sem er í raun bæði einfalt og flókið. Við vitum flest nokkurn vegin hvað er hollt og hvað ekki, en samband okkar við mat getur samt verið flókið og erfitt. Það er því mikilvægt að fá fagmanneskju til að fara yfir þetta með okkur og skemmtilegt að Norðfirðingar skuli einmitt eiga sprenglærðan næringarfræðing sem við getum leitað til.“

„Við ætlum að byrja á kokkum og matráðum, en svo verður líka almenn fræðsla fyrir allt starfsfólk sem mun fara fram á netinu eftir að við komum heim frá Gdansk. Við verðum örugglega sérlega móttækileg fyrir efninu á þeim tímapunkti, mörg hver eflaust temmilega uppþembd eftir vellystingar og sukk í Póllandi. En að öllu gamni slepptu þá snýst þetta alls ekki um einhverjar öfgar heldur frekar gömlu góðu „allt er best í hófi“ nálgunina. Við hvetjum alla kokka og matráða sem geta til að mæta á námskeiðin í næstu viku, en þeir sem komast alls ekki munu fá fræðslu hjá Berglindi á netinu. Svo hvetjum við auðvitað alla til að horfa á netfyrirlesturinn hennar Berglindar þegar við komum heim úr árshátíðarferðinni okkar“, segir Sigurður að lokum.

 

Deila: