Æft við Færeyjar

Deila:

Áhöfnin á varðskipinu Þór æfði á miðvikudag með áhöfnum Brimils, varðskips færeysku landhelgisgæslunnar, og Vædderen, varðskips danska sjóhersins, við strendur Færeyja. Landhelgisgæslunni var formlega boðið til æfingarinnar fyrr í mánuðinum.

Æfingin hófst á reykköfunaræfingu þar sem leitað var að þremur týndum skipverjum. Áhöfn Þórs bjargaði skipverjunum og kom til læknateymis Vædderen sem sá um aðhlynningu.

Að reykköfunaræfingu lokinni fór fram dráttaræfing þar sem Vædderen dró varðskipið Þór. Að æfingu lokinni fór fram viðrun þar sem rýnt var í æfinguna sem þótti takast sérlega vel.

 

Deila: