Matvælastofnun hefur rannsókn á misræmi í talnagögnum frá Arnarlaxi

Deila:

Matvælastofnun hefur hafið rannsókn vegna misræmis í upplýsingum frá laxeldisfyrirtækinu Arnarlaxi. Málið varðar laxafjölda í sjókví í Arnarfirði en í skýrslum Arnarlax var áætlaður fjöldi fiska umtalsvert meiri en það magn sem kom í ljós þegar slátrað var úr kvínni í október 2022.

Matvælastofnun hefur kallað eftir frekari skýringum og gögnum frá Arnarlaxi en stefnt er að rannsókn verði lokið fljótlega.

 

Deila: