Ríkisstjórnin styrkir gerð minnisvarða um síldarstúlkur á Siglufirði

Deila:

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita 15 milljónir króna af ráðstöfunarfé sínu til að styrkja gerð minnisvarða um þátt síldarstúlkna í íslensku atvinnu- og efnahagslífi á síðustu öld. Ráðgert er að minnisvarðinn verði staðsettur á sérbyggðu plani við Síldarminjasafnið á Siglufirði. Síldarminjasafnið er eitt stærsta sjóminja- og iðnaðarsafn landsins og hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga.

Á næsta ári verða liðin 120 ár frá því að fyrsta síldin var veidd við Ísland. Fyrirhugað er að minnisvarðinn verði vígður í lok júlí á næsta ári með veglegri helgardagskrá á Siglufirði þar sem framlag síldarstúlkna verður sérstaklega heiðrað.

Þegar mest var á síldarárunum voru síldarstúlkurnar á Siglufirði um þúsund talsins og voru þær tilbúnar til að bjarga verðmætum dag og nótt, hvernig sem viðraði. Tekjur þeirra voru háðar því hvort síldin veiddist og aðeins var greitt fyrir saltaðar tunnur en engin kauptrygging til staðar.

Gerð hefur verið frummynd af minnisvarðanum en unnið verður að gerð hans í vetur á vélaverkstæðum á Siglufirði. Minnisvarðinn verður gerður úr sérstöku stáli sem norðlenskt veðurfar, sjóselta, rok, rigning, snjór og frost, vinnur ekki á.
Á myndinni má sjá hugmynd siglfirska myndlistarmannsins Arthurs Ragnarssonar að minnisvarðanum.

 

Deila: