Allar viðskiptaeiningar skiluðu góðum árangri

Deila:

„Allar helstu viðskiptaeiningar félagsins skiluðu góðum árangri á fjórðungnum og ég er ánægður að sjá niðurstöður okkar byggja á breiðum grunni, sem sést m.a. á því að meira en helmingur af tekjum samstæðunnar eru upprunnar utan íslenska hagkerfisins. Afkoma gámasiglingakerfisins heldur áfram að styrkjast, að mestu byggt á kröftugum vexti í Trans-Atlantic flutningum. Á sama tíma sáum við mikil umsvif og almennt góða afkomu af þeirri fjölbreyttu starfsemi sem styður við áætlunarsiglingakerfið, svo sem landflutningum, vöruhúsaþjónustu, frystigeymslurekstri og tollaþjónustu. Það var lítils háttar lækkun í tekjum í flutningsmiðluninni, sem endurspeglar breytt landslag í alþjóðlegu efnahagsumhverfi, þar sem við höfum séð lækkun á alþjóðlegum flutningsverðum og minni eftirspurn eftir flutningum á ákveðnum leiðum, en þrátt fyrir þennan tekjusamdrátt er EBITDA af starfseminni óbreytt frá fyrra ári,“ segir Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips um afkomu félagsins. Hann segir ennfremur:

„Bæði tekjur og gjöld hækka umtalsvert frá fyrra ári, einkum vegna hærri verða á aðkeyptri flutningaþjónustu, olíuverðs og aukinna umsvifa. Trans-Atlantic þjónustan heldur áfram að styrkjast og er orðin mikilvæg stoð í gámaflutningakerfinu okkar. Þá tilkynntum við nýlega að við munum bæta við fjórða skipinu á Norður-Ameríku leiðina síðar í nóvember. EBITDA í fjórðungnum nam 49,6 milljónum evra sem er hækkun um 35% frá sama fjórðungi síðasta árs, og EBIT var 34,1 milljón evra sem er aukning um 10,3 milljónir evra. Hagnaður eftir skatta nam 28,1 milljón evra og handbært fé í lok tímabilsins var 46,6 milljónir evra.

Alþjóðleg flutningsverð lækkuðu verulega á flestum leiðum í fjórðungnum sem endurspeglar þá stöðu og óvissu sem uppi er í alþjóðahagkerfinu. Þessi þróun mun hafa áhrif á framlegð í alþjóðlegri flutningsmiðlun þrátt fyrir að aukið aðgengi að plássi og búnaði hjá stærri skipafélögum ætti að styðja við magnaukningu sem vegur upp á móti verðlækkunum. Flutningsmiðlun Eimskips er sérhæfð í flutningum á kældri og frystri vöru sem kemur sér vel við núverandi aðstæður þar sem eftirspurn eftir matvöru er almennt minna næm fyrir efnahagsþrengingum en eftirspurn eftir annars konar vörum.

Eimskip heldur áfram á grænni vegferð og á fjórðungnum voru mikilvæg skref tekin í átt að orkuskiptum í starfseminni með formlegu samstarfi við Landsvirkjum og fjárfestingum í fyrstu rafknúnu flutningabílunum í flota Eimskips.

Heilt á litið hefur fjórði ársfjórðungum farið vel af stað og við teljum horfur út árið vera nokkuð góðar. Horfur í alþjóðlegu efnahagsumhverfi fyrir næsta ár litast af mikilli óvissu og verðbólguþrýstingi sem hefur bæði áhrif á magn í alþjóðaviðskiptum og vinnumarkað um heim allan. Við trúum því að Eimskip sé vel staðsett með heimamarkað í Norður-Atlantshafi í löndum sem eiga það sammerkt að vera með hagkerfi sem eru drifin áfram af útflutningi auðlinda, en að sama skapi verulega háð innflutningi á neysluvöru og hrávörum.“

Helstu punktar úr rekstrinum

  • Almennt sterk afkoma af öllum viðskiptaeiningum í þriðja ársfjórðungi, sem hefur sögulega verið sterkasti fjórðungur ársins.
  • Góð afkoma af gámasiglingakerfinu byggt á góðri nýtingu og aukinni skilvirkni í rekstri kerfisins.
    • Áfram sterkt magn í innflutningi til Íslands og Trans-Atlantic þjónustunni.
    • Útflutningur frá Íslandi tók við sér undir lok fjórðungsins eftir tiltölulega rólegt sumar.
    • Framlag Trans-Atlantic þjónustunnar til siglingakerfisins er umtalsvert hærra en á síðasta ári, og bæði verð og magn endurspegla þá miklu eftirspurn sem ríkir á þessari alþjóðlegu flutningaleið.
  • Töluverð umsvif og góð afkoma af þjónustu sem styður við áætlanasiglingakerfið, t.d. af landflutningum, vöruhúsarekstri, frystigeymslum og tollaþjónustu.
  • Alþjóðlega flutningsmiðlunin skilar góðri niðurstöðu þrátt fyrir aukna óvissu í alþjóðlegu efnahagsumhverfi.
    • Aðgengi að búnaði og plássi hjá stóru skipafélögunum fór áfram batnandi á fjórðungnum.
    • Alþjóðleg flutningsverð hófu að lækka hratt á seinni hluta fjórðungsins, með tilheyrandi þrýstingi á framlegð.
  • Tekjur í fjórðungnum námu 292,2 milljón evra sem er aukning um 55,6 milljónir eða 23,5% samanborið við Q3 2021.
  • Almennt sterkt magn í áætlanakerfinu, sérstaklega í innflutningi til Íslands og Trans-Atlantic flutningum.
  • Tekjur í flutningsmiðlun hækka þrátt fyrir minna magn, en framlegðarhlutfall dregst lítillega saman.
  • Hærra verð á aðkeyptri þjónustu auk hærra olíuverðs eru einnig áhrifaþættir til tekjuaukningar.
  • Kostnaður nam 242,6 milljónum evra sem er hækkun um 21,4% frá kostnaði síðasta árs og skýrist að mestu af verulegri aukningu í kostnaði vegna kaupa á þjónustu flutningsbirgja og hærra olíuverði en einnig vegna hækkunar á kostnaði tengdum siglingakerfinu auk launakostnaðar.
  • Góður vöxtur í EBITDA sem nam 49,6 milljónum evra á fjórðungnum samanborið við EBITDA að fjárhæð 36,8 milljónir evra fyrir sama tímabil 2021. Áfram er heilbrigð EBITDA framlegð af rekstrinum eða 17,0% samanborið við 15,5% fyrir sama tímabil síðasta árs.
  • Hagnaður eftir skatta nam 28,1 milljón evra á fjórðungnum samanborið við 20,7 milljónir evra fyrir sama tímabil síðasta árs.
  • Sterkt sjóðstreymi var frá rekstri eða að fjárhæð 37,2 milljónir evra sem er aukning um 10,2 milljónir evra samanborið við sama tímabil síðasta árs.
    • Handbært fé í lok tímabilsins nam 46,6 milljónum evra samanborið við 25,1 milljón evra í lok sama ársfjórðungs 2021.
    • Skuldsetningahlutfall var 1,23x sem er undir langtímamarkmiði um 2-3x.
    • Sterk fjárhagsleg staða félagsins er kostur, sér í lagi í núverandi efnahagsumhverfi.
  • Viðhaldsfjárfesting og nýfjárfesting á fyrstu níu mánuðum nam samtals 20,6 milljónum evra samanborið við 9,4 milljónir evra fyrir fyrstu níu mánuði síðasta árs.

 

Deila: