Gengi útgerðarfélaganna hækkar

Deila:

Úrvalsvísitalan hækkaði lítillega í 4,2 milljarða króna viðskiptum á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag. Útgerðarfélögin Brim og Síldarvinnslan hækkuðu um 4%-6% í viðskiptum gærdagsins samkvæmt frétt á vb.s

Hlutabréfaverð Brims hækkaði um 6% í 650 milljóna viðskiptum og stendur nú í 87,5 krónum. Gengi félagsins hefur ekki verið hærra síðan í september. Þá hækkaði hlutabréfaverð Síldarvinnslunnar um 4% í 240 milljóna veltu og stendur nú í 118,5 krónum. Fiskistofa birti í gær úthlutun aflamarks í loðnu fyrir vetrarvertíðina 2022/2023. Auk þess hefur íslenska krónan veikst töluvert síðustu daga.

 

Deila: