„Málaferlin gegn Samherja hafa skaðað orðspor íslensk sjávarútvegs“

Deila:

Matvælaráðherra segir að málaferli gegn Samherja vegna meintrar spillingar hafi skaðað orðspor íslensks sjávarútvegs og fjármálaráðherra telur að stjórnvöld eigi að tryggja að allir hafi sömu tækifæri en eigi ekki einu sinni að reyna að tryggja öllum sömu útkomu í lífinu. Þetta kom fram í fyrirspurnartíma á Alþingi í gærmorgun og greint er frá á visir.is.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingmaður Pírata spurði Svandísi Svavarsdóttur matvælaráðherra hvort henni hafi þótt sæmandi að Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi hafi boðið Þorsteini Má Baldvinssyni forstjóra Samherja að flytja ávarp á sjávarútvegsdeginum í lok október þar sem ráðherra flutti einnig ávarp.

„Ákvörðun um að bjóða forstjóra Samherja að ávarpa fundinn hefur sætt gagnrýni. Enda er um að ræða forstjóra fyrirtækis sem er beinlínis grunaður um að flytja út íslenska spillingu og hefur réttarstöðu sakbornings hér á landi og annars staðar vegna ætlaðra stórfelldra mútubrota og skattsvika,“ sagði Þórhildur Sunna.

Gæti þetta ekki skaðað orðspor íslensks sjávarútvegs spurði þingmaðurinn. Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra sagðist ekki ráða því hverjum fyrirtæki og samtök byðu að ávarpa fundi sína.

„Hins vegar vil ég segja vegna spurningarinnar sem háttvirtur þingmaður ber hér upp að það er auðvitað staðreynd að það er um að ræða alvarlegar ávirðingar og alvarleg mál sem eru í rannsókn á þessu sviði. Mál sem geta skaðað og hafa skaðað orðspor íslensks sjávarútvegs,“ sagði Svandís.

Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar spurði Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra í ljósi ummæla formanns Sjálfstæðisflokksins í landsfundarræðu, um að tekist hefði að skapa stéttlaust samfélag á Íslandi, hvort hann tryði því að Ísland væri stéttlaust samfélag. Á síðasta ári hefðu þrír útgerðarmenn haft þrjá milljarða í fjármagnstekjur sem væru um þúsundföld árslaun öryrkja.

„Telur ráðherrann að öryrkinn og stórútgerðarmaðurinn tilheyri sömu stétt. Og númer tvö, fæðist barn öryrkjans inn í sömu stétt og barn útgerðarmannsins,“ spurði Jóhann Páll.

Fjármálaráðherra sagði það staðreynd að hvergi í heiminum væri meiri jöfnuður en á Íslandi. Sjálfstæðismenn rækju ekki eins og jafnaðarmenn stjórnmálastefnu sem þættist geta tryggt öllum sömu niðurstöðu í lífinu. Það væri misskilningur jafnaðarmanna að það væri skynsamlegt að reyna það að hálfu stjórnvalda.

„Að stoppa þá sem eru að skara fram úr. Skera nógu mikið af þeim til að afhenda öðrum sem hafa of lítið þannig að útkoman á endanum verði jöfn. Þetta er ótrúlega döpur nálgun á hlutverk stjórnvalda. Þannig að ég kem hingað upp til að gleðja háttvirtan þingmann með því að segja: Þetta fólk er ekki í sömu stöðu og við stjórnmálamennirnir eigum ekki einu sinni að reyna að tryggja öllum nákvæmlega sömu stöðu í lífinu,“ sagði Bjarni Benediktsson.

Deila: