Undirbúa 200 tonna eldi á sæeyra í Grindavík

Deila:

HS Orka og Sæbýli hafa undirritað viljayfirlýsingu um sæeyrnaeldi í Auðlindagarði HS Orku. Gert er ráð fyrir byggingu á tvö hundruð tonna eldi sem mögulegt er að fimmfalda á næstu tíu árum.

Sæbýli hefur síðustu fimmtán ár þróað eigin klakstofn, tækni og framleiðsluaðferð við eldi á sæeyrum á Íslandi. Uppsetning eldisins er einstök á heimsvísu og sú fyrsta sinnar tegundar. Byggir hún á lóðréttu hillukerfi og vatnsendurnýtingu. Sæeyru eru í raun sæsniglar og eru ein verðmætasta eldistegund í heimi.

„Einstakar náttúruauðlindir á Íslandi með jarðvarma, hreinum borholusjó og grænni raforku gerir Sæbýli í samvinnu við HS Orku mögulegt að þróa umhverfisvænt skelræktarverkefni. Bæði félögin leggja áherslu á umhverfisvænt hringrásarkerfi og erum við því mjög ánægð hjá Sæbýli að ná þessum áfanga í uppbyggingu félagsins,“ er haft eftir Sigurði Péturssyni, stjórnarformanni Sæbýlis í tilkynningu.

Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku, segist vera afar spenntur fyrir samstarfinu við Sæbýli. Starfsmenn eldisfyrirtækisins búi yfir mikilli þekkingu og reynslu við uppbyggingu á eldisrekstri.

„Framleiðsla á sæeyrum fellur vel að hugmyndafræði Auðlindagarðsins, nýtir bæði grænt rafmagn og varma við framleiðsluna. En ekki síst lítum við jákvæðum augum á þá möguleika sem sæeyrnaeldið opnar á fyrir möguleg frekari samlegðaráhrif eldisfyrirtækja á svæðinu,“ segir Tómas.
Þessi frétt er af visir.is

Á myndinni eru forsvarsmenn HS Orku og Sæbýlis við undirritunina. Frá vinstri: Arnþór Gústavsson, framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Sæbýli, Ásgeir Guðnason stofnandi og framkvæmdastjóri Sæbýlis, Sigurður Pétursson, stjórnarformaður Sæbýlis, Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku og Jón Ásgeirsson, framkvæmdastjóri stefnumótunar og Auðlindagarðs hjá HS Orku.

 

 

Deila: