Lúðusúpa að hætti Nýfundlendinga

Deila:

Á Nýfundnalandi er mikil fiskneysla, enda eru gjöful fiskimið við Nýfundnaland, þó þorskstofninn hafi hrunið og veiðar að mestu bannaðar frá árinu 1992. Aðrar fiskitegundir standa betur og enn má veiða lúðu þar. Því datt okkur í hug að huga að uppskrift að lúðu og fundum þessa fínu uppskrift að sannkallaðri lúðuveislu. Uppskriftin er stór og dugar rétturinn fyrir alt að tíu manns.

Innihald:
500 gr. lúða
3 msk. smjör
½ bolli saxaður laukur
½ bolli saxað sellerí
500 ml. niðursoðnir tómatar
500 ml. tómatsafi
6 msk. tómatsósa
½ bolli söxuð græn paprika
½ bolli hrísgrjón
½ tsk. chillisósa
1 tsk. Worcestersósa
2 dropar af tabascosósu
2 hvítlauksrif
2 msk. kryddblanda (pickling spice)
Aðferð:
Setjið lúðuna, auðvitað er hægt að nota annan fisk, í kalt vatn og hitið að suðu. Takið fiskinn upp úr pottinum og losið í „flögur“. Léttsteikið lauk, sellerí og paprikuna í smjöri í stórum potti. Bætið síðan í pottinn 850 millilítrum af vatni, tómötunum, tómatsafanum, tómatsósunni hrísgrjónunum, chillisósu og hvítlauk og kryddblöndu. Það tvennt síðastefnda er gott að hafa í kryddpoka eða grisju til að ná úr því kryddinu, en einnig má setja það beint í súpuna. Látið þetta sjóða við vægan hita í 20 mínútur. Þá fer lúðan út í og súpan hituð á ný og kryddpokinn veiddur upp úr. Þá er súpan tilbúin á borðið. Þetta er fremur stór uppskrift, hugsuð fyrir 10 manns.

 

Deila: