Metárið 2021 í fiskeldi nú þegar toppað

Deila:

Á fyrstu 10 mánuðum ársins er útflutningsverðmæti eldisafurða komið í tæpa 38 milljarða króna. Það er um 24% aukning í krónum talið frá sama tímabili í fyrra, en um 29% sé tekið tillit til gengisbreytinga. Útflutningsverðmæti eldisafurða hefur aldrei áður verið meira á tímabilinu og er í raun nú þegar orðið meira en það hefur áður verið á heilu ári. Þetta má sjá í fyrstu bráðabirgðatölum Hagstofunnar um vöruskipti sem birtar voru í síðustu viku. Þar er einungis að sjá tölur um útflutningsverðmæti eldisafurða í heild, en ekki niður á einstaka eldistegundir eða útflutt magn. Yfir þetta er farið á uppslýsingasíðu Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.

Hækkun á afurðaverði meginástæða
Þróunin í ár er nokkuð ólík þeirri þróun sem verið hefur undanfarin ár. Það má sjá á myndinni hér fyrir neðan, sem sýnir hvernig samspil afurðaverðs í erlendri mynt, gengi krónunnar og magns hefur áhrif á útflutningsverðmæti eldisafurða í krónum talið. Þetta er byggt á ársfjórðungstölum Hagstofunnar og því aðeins hægt að sjá þróunina á fyrstu 9 mánuðum ársins. Fyrri ár eru heilsárstölur. Á myndinni blasir við að sú aukning sem orðið hefur í útflutningsverðmætum eldisafurða á árinu má alfarið rekja til hækkunar á afurðaverði, en markaðsverð á laxi hefur náð sögulegum hæðum á árinu. Á sama tíma stóð útflutt magn svo til í stað, ólíkt fyrri árum þegar stóraukin framleiðsla (magn) var megindrifkraftur aukinna útflutningsverðmæta.

Á næstu árum má reikna með að framleiðslan aukist á ný í ljósi mikillar uppbyggingar í fiskeldi nú um stundir og á næstu árum. Það er afar jákvætt enda er mikilvægt að útflutningur sé fjölbreyttur og ekki of háður gengi einstakra atvinnugreina, ekki síst fyrir lítil opin hagkerfi eins og það íslenska.

 

 

Deila: