Selasetrið og Hafró endurnýja samstarfssamning

Deila:

Selasetur Íslands og Hafrannsóknarstofnun, rannsókna- og ráðgjafastofnun hafs og vatna endurnýjuðu samstarfssamning sinn í lok október 2022.

Samkomulagið kveður á um eflingu á rannsóknum á selum við Ísland á starfsstöðinni á Hvammstanga. Þá sérstaklega vöktun á stofnstærð útsels og landsels.

Auk þess að sinna gagnasöfnun og rannsóknum sem stuðla að bættri ráðgjöf í samræmi við stjórnunarmarkmiða stjórnvalda.

Aðilar eru sammála um að leita leiða til að fjölga starfsmönnum þannig að styrkja megi rannsóknarstarfsemi Selaseturs Íslands og starfsstöð Hafrannsóknarstofnunar á Hvammstanga. Samkomulagið er ótímabundið.
Frá þessu er greint á heimasíðu Selasetursins.

 

Deila: