Umsókn Samherja ekki í samræmi við deiliskipulag

Deila:

Skipulagsnefnd Grindavíkur hefur hafnað umsókn Samherja um byggingarleyfi fyrir Seiðahúsi við Laxeldisstöðina Stað vestan Grindavíkur. Byggingin er staðsteypt með yleiningar á þaki. Stærð er 2.743,1 m2. Samherji tekur fram í umsókn sinni að umsóknin er ekki í samræmi við skipulag það er að um það bil 250 fermetrar af byggingunni fara út fyrir byggingarreit.

Skipulagsnefnd hafnar umsókninni. Áformin eru ekki í samræmi við gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.  Skipulagsnefnd beinir því til umsækjanda að senda inn tillögu að breyttu deiliskipulagi til nefndarinnar.

Deila: