Mikið af fiski – lítill kvóti

Deila:

Landssamband smábátaeigenda hefur tekið saman tölur um þorsk- og ýsuveiði krókaaflamarksbáta við upphaf yfirstandandi fiskveiðiár og borið saman við sama tímabil sl. 4 ár.   Tímabilið er til og með 19. nóvember – 80 dagar.

Viðmælendur LS  eru sammála um að nánast aldrei hafi verið jafnmikið af fiski á miðunum og nú.  Kannski ekki að furða þar sem lítið álag er á miðunum.

Halda þarf verulega aftur af sér til að aflinn verði ekki of mikill í hverri sjóferð.  Þannig landaði línubáturinn Eskey ÓF á Siglufirði sl. laugardag 9 tonnum, þar sem ýsa var ⅔ hluti aflans.  Róið var með 36 bala þar sem smokkur var meginuppistaða beitunnar.  Róðurinn varði í 17 klukkustundir og skilaði 250 kg á hvern bala.

Áhugavert er að bera aflabrögðin í ýsunni saman við fiskveiðiárið 2007/2008 þegar leyfilegur heildarafli var 105.823 tonn.  Þá voru menn róður eftir róður að rembast við að ná 100 kg á bala, en nú þegar heimildirnar eru rúmum 40% lægri eru aflabrögðin eins og áður sagði.

Mestur þorskafli þrátt fyrir minnstu heimildirnar

Þrátt fyrir 6,1% skerðingu í þorski milli ára hefur þorskafli krókaflamarksbáta aukist um hvorki meira né minna 28% á téðu tímabili.  Hafa þeir nú veitt 32% af úthlutuðu aflamarki, sem er mun hærra hlutfall en sömu tímabil þar á undan þegar hlutfallið rokkaði á milli 20 og 23%.

Greinilegt er að vinnslur leggja um þessar mundir meiri áherslu á að vinna þorsk en ýsu.

Deila: