Mast veitir rekstrarleyfis til Benchmark Genetics Iceland hf. í Reykjanesbæ

Deila:

Matvælastofnun hefur veitt Benchmark Genetics Iceland hf. rekstrarleyfi til fiskeldis við Kalmanstjörn í Reykjanesbæ. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 17. október 2022 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 14. nóvember 2022.

Benchmark Genetics Iceland hf. sótti um nýtt rekstrarleyfi vegna 600 tonna hámarkslífmassa í seiða- og matfiskeldi á laxi við Kalmanstjörn í Reykjanesbæ. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin þann 23. október 2019. Starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Framkvæmd fyrirtækisins fór í gegnum mat á umhverfisáhrifum í samræmi við lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður.

 

Deila: