Vélarbilun í Vilhelm

Deila:

Laust fyrir klukkan 13:00 í dag er uppsjávarskip Samherja, Vilhelm Þorsteinsson EA 11, var að koma að hafnarmynninu í Neskaupstaðarhöfn, varð bilun í skrúfubúnaði skipsins með þeim afleiðingum að skipið tók að sigla stjórnlaust aftur á bak og varð síðan vélavana.

Við þetta rak skipið upp að bröttum sandkanti sem er rétt sunnan við hafnarmynnið. Barði NK 120, skip Síldarvinnslunnar, kom strax til aðstoðar og dró Vilhelm að bryggju.

Ekki er vitað um neinar skemmdir en eftir er að finna út hvað gerðist í vélbúnaðinum. Samkvæmt venju var Landhelgisgæsla umsvifalaust upplýst um hvað gerðist.

Björgunarskipið Hafrún kom fljótt á staðin og aðstoðuðu skipverjar Hafrúnar við að losa Vilhelm Þorsteinsson.
Með 900 tonn af síld
Vilhelm var með rúmlega 900 tonn af síld sem fékkst austur af landinu. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Guðmund Þ. Jónsson skipstjóra. „Við fengum aflann í einum fimm holum á Rauða torginu. Það er ekki mikið af síld að sjá á þessum slóðum en hún er þarna í smátorfum. Athyglisvert er að töluvert er af íslenskri sumargotssíld í aflanum og það er ánægjulegt að sjá að sú síld virðist vera að rétta verulega úr kútnum austur af landinu. Við vorum eina íslenska skipið á þessum slóðum en þarna voru hins vegar Færeyingar. Nú er þessum veiðum lokið hjá okkur og það er í reynd allur kvóti eiginlega búinn. Ég gæti trúað að haldið verði til kolmunnaveiða eftir áramótin og svo er það auðvitað loðnan,“ segir Guðmundur.

 

 

Deila: