Gunnar Tryggvason ráðinn hafnarstjóri Faxaflóahafna

Deila:

Stjórn Faxaflóahafna samþykkti á fundi sínum í síðustu viku að ráða Gunnar Tryggvason sem hafnarstjóra Faxaflóahafna. Stjórn byggði ákvörðun sína á tillögu ráðgefandi hæfnisnefndar sem mælti einróma með ráðningu Gunnars í stöðuna. Gunnar hefur verið starfandi hafnarstjóri frá maí síðastliðnum.

 

Deila: