Loðnan eykur aflavermætið

Deila:

Verðmæti afla við fyrstu sölu var 150 milljarðar króna á fyrstu þremur ársfjórðungum ársins 2022 samkvæmt bráðabirgðatölum. Þetta er 26% aukning frá sama tímabili árið 2021 en þá var aflaverðmæti 119 milljarðar króna. Verðmæti botnfisktegunda var 102 milljarðar króna sem er 18% aukning frá fyrra ári. Verðmæti uppsjávarafla nam 40 milljörðum króna sem er 69% aukning frá fyrra ári.

Magn landaðs afla á fyrstu þremur ársfjórðungum 2022 var tæplega 1,2 milljónir tonna en var 813 þúsund tonn árið áður. Þessi magnaukning á milli ára er að mestu tilkomin vegna 375 þúsund tonna aukningar á loðnuveiði.

 

 

Deila: