Samfélagið í Grindavík í sárum

Deila:

Samfélagið í Grindavík er í sárum eftir að sjómaður, búsettur í bænum, féll frá borði línuskipsins Sighvats GK-57 í Faxaflóa. Þetta segir Fannar Jónasson, bæjarstjóri í Grindavík í samtali á visir.is.

Maðurinn féll frá borði síðdegis á laugardag og hefur leit staðið yfir síðan þá. Landhelgisgæslan fer fyrir leitinni, sem heldur áfram í góðu leitarveðri í dag. Maðurinn var búsettur í Grindavík og línubáturinn, Sighvatur, í eigu útgerðarinnar Vísis hf. í Grindavík.

„Samfélagið hér er náttúrulega bara í sárum vegna þessa hörmulega atburðar og nú er bara beðið eftir því að allur þessi stóri hópur skipa, báta og þyrlan finni skipverjann,“ segir Fannar í samtali við fréttastofu.

Bænastund hafi verið haldin í Grindavíkurkirkju í gær sem vel hafi verið mætt í. Atburður sem þessi hafi mikil áhrif á lítið samfélag.

„Já, þetta er mjög erfitt og bæði fjölskylda stór og vinir sem þekkjast hér frá ýmsum hliðum. Bæði áhöfn, útgerðin og fjölskylda sjómannsins eiga um mjög sárt að binda. Það er samhugur hjá fólki hérna og samheldni þegar svona hörmulegir atburðir verða hérna hjá okkur,“ segir Fannar.

Þeim sem þurfi verði boðin áfallahjálp.

„Það er reynt að hjálpa viðkomandi eins og hægt er. Bæði kirkjan og fleiri sem koma að því, eftir því sem þörf er á. Síðan stöndum við bara saman hérna í Grindavík eins og við gerum á erfiðum tímum og reynum að styrkja hvert annað.“

 

Deila: