Tilkynnt um áform að kvótasetningu grásleppu

Deila:

Tilkynnt hefur verið í Samráðsgátt stjórnvalda að áformað sé að hlutdeildarsetja grásleppu. Aflahlutdeild einstakra skipa skuli ákveðin með tilliti til aflareynslu sem fengin hafi verið á grundvelli leyfis sem skráð er á viðkomandi skip á tilteknu tímabili.  Frá þessu er greint á heimasíðu Landsambands smábátaeigenda.

Aflahlutdeild að hámarki 2%

Í væntanlegu frumvarpi verður gert ráð fyrir að samanlögð aflahlutdeild fiskiskipa í eigu einstakra aðila, einstaklinga eða lögaðila, eða í eigu tengdra aðila, nemi aldrei hærra hlutfalli af heildaraflahlutdeild í grásleppu en 2%.

Aflaheimildir svæðisskiptar

Jafnframt er lagt til að aflaheimildir í grásleppu verði svæðisskiptar og að framsal aflaheimilda verði eingöngu heimilt innan tiltekinna svæða og framsal milli svæða óheimilt. Þannig verði tryggt að aflaheimildir hverfi ekki af tilteknum svæðum en veiti samt sem áður möguleika til hagkvæmari veiða innan svæðanna.

Pottur fyrir nýliða

Þá er áformað að mæla fyrir um nýliðunarpott fyrir grásleppu í gegnum 5,3% kerfið.  Bent hefur verið á að ekki hefur verið mikil nýliðun í grásleppuveiðum síðast liðin 10 ár þrátt fyrir að kostnaður við að hefja veiðar sé ekki hár. Ef að hlutdeildarsetning leiðir til aukinnar hagkvæmni í greininni er hugsanlegt að verðmæti aflaheimilda muni aukast og því verði kostnaðarsamara að hefja grásleppuveiðar verði frumvarpið að lögum. Áformað er að ráðherra verði veitt heimild til setningar reglugerðar um nýliðunaraflamark, þar sem komi fram hverjir geti sótt um nýliðunaraflamark, á hvaða tímamarki, hámarksaflamark fyrir nýliða og hvernig ráðstafa skuli því nýliðunaraflamarki sem ekki er sótt um.

Verði frumvarpið að lögum þá muni þau koma til framkvæmda á grásleppuvertíðinni 2024.

Reikna má með að Matvælaráðuneytið hafi samráð við Landssamband smábátaeigenda við gerð væntanlegs frumvarps.

Ályktun síðasta aðalfundar um grásleppu var samþykkt eftirfarandi:

LS er andvígt kvótasetningu á grásleppu.

 

Deila: