Hoffell með 900 tonn af síld
Hoffell landaði tæpum 900. tonnum af síld sem fékkst um 90 mílur vestur af Reykjanesi um helgina. Hoffell verður komið til Fáskrúðsfjarðar um hádegi á morgun. Túrinn gekk vel og fékkst aflinn á aðeins 19 tímum. Síldin fer öll í söltun.
Hoffell fer aftur út eftir löndun á síldveiðar.